Fréttir

Olís og Bylgjan á Menningarnótt

Hemmi og Svansý halda áfram för sinni um landið en þessa helgi fara þau stutt því stærsti menningarviðburðurinn verður að þessu sinni í Reykjavík á sjálfri Menningarnótt. Eins og við má búast munu þessir glaðbeittu útvarpsmenn fá til sín fólk úr öllum áttum, sem eiga það sameiginlegt að skemmta sér og öðrum á Menningarnótt. Það er þó öruggt að tveir viðmælenda þeirra verða heppnir þátttakendur í Ævintýraeyjuleik Olís en þessa helgi draga þau út 2 x 50.000 Vildarpunkta Icelandair. Við óskum öllum góðrar helgar og Reykvíkingum og gestum þeirra góðrar skemmtunar á Menningarnótt. 



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica