Fréttir

Bleika slaufan

Olís í samstarfi við Krabbameinsfélagið um sölu á Bleiku slaufunni.

Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Styðjið baráttuna gegn krabbameinum og hafið slaufuna ykkar sýnilega í októbermánuði.

Slaufan kostar 1.500 krónur og er hönnuð af Ragnheiði I. Margeirsdóttur vöruhönnuði sem vann samkeppni Bleiku slaufunnar í ár. Innblástur er sóttur í  þjóðleg klæði formæðra okkar, íslenska þjóðbúninginn og það sem honum fylgir. Bleika slaufan er til sölu á öllum helstu bensínstöðvum Olís um land allt. Salan hefst 1. október.

 

bleika-slaufan-2010-291x127Í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi eins og gert hefur verið síðan árið 2000, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Þetta er hluti af alþjóðlegu árveknisátaki, að frumkvæði Estée Lauder, en bleik slaufa er tákn átaksins. Heimsækið vefsíðu átaksins með því að smella hér.



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica