Breyting á lögum vegna sölu á litaðri díselolíu
...þann 11. júní 2010 var 2. mgr. 4. gr. laganna breytt þannig að gjaldskyldum aðilum skv. 1. mgr. 3. gr. laganna var gert óheimilt að selja litaða olíu í sjálfsafgreiðsludælum nema slík viðskipti ættu sér stað með sérstöku viðskiptakorti hins gjaldskylda aðila. Breytingin tók gildi þann 1. október sl. Fjármálaráðuneytið hlutaðist til um að umrædd breyting yrði gerð á lögunum með það að markmiði að takmarka aðgang að litaðri olíu og að rekjanleiki viðskipta með litaða olíu yrði meiri.
Gjaldskyldum aðilum er heimilt að selja eða afhenda olíu án innheimtu olíugjalds í eftirtöldum tilvikum:
· Dráttavélar
· Kranabifreiðar
· Vörubifreiðar með krana yfir 25 tonnmetrum
· Borkranabifreiðar
· Steypuhræribifreiðar
· Götuhreinsibifreiðar
· Holræsabifreiðar
· Borholumælingabifreiðar
· Úðunarbifreiðar
· Beltabifreiðar og námaökutæki sem eru eingöngu notuð á lokuðum vinnusvæðum og utan vega
· Bifreiðar í eigu björgunarsveita (sjálfboðaliðasamtök sem hafa björgun mannslífa og verðmæta að markmiði)
Að gefnu tilefni þykir rétt að árétta að umrædd breyting nær eingöngu til greiðslumáta í sjálfsafgreiðslu og eingöngu er heimilt að selja gegn eftirtöldum greiðslumiðlum sem eru rekjanlegir:
· Olís kort
· ÓB lykill (gildir um ÓB stöðvar)
Ef vafi leikur á um afgreiðslu til viðskiptavina skal starfsmaður leita til verslunarstjóra og/eða vaktstjóra á viðkomandi þjónustustöð.

