Fréttir

Íslenska ánægjuvogin

Olís með bestu einkunn í sínum flokki

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2007 voru kynntar 6. febrúar sl. en þetta er í níunda sinn sem ánægja íslenskra viðskiptavina er mæld með þessum hætti. Olís var með hæstu einkunn olíufélaga. Starfsfólk Olís þakkar viðskiptavinum sínum þessa góðu viðurkenningu og lítur á þetta sem hvatningu til að gera enn betur. Jafnframt bjóðum við nýja viðskiptavini velkomna í hóp ánægðustu viðskiptavina olíufélaga.

Að þessu sinni var mæld ánægja viðskiptavina 24 fyrirtækja í átta greinum. Könnunin var gerð í síma og tekið var viðtal við 250 viðskiptavini hvers fyrirtækis en þeir voru valdir af tilviljun úr þjóðskrá.
Aðilar að Íslensku ánægjuvoginni eru auk Capacent Gallup, Samtök iðnaðarins og Stjórnvísi.
Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum og almenningi í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina. Þá er og markmið mælinganna að meta nokkra áhrifaþætti sem tengjast ánægju viðskiptavina, t.d. ímynd og mat á gæðum vöru og þjónustu auk þess sem áhrif ánægju á tryggð viðskiptavina eru mæld.
Mæling sem þessi er talin mjög mikilvæg þar sem erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl milli ánægju viðskiptavina og afkomu fyrirtækjanna, en þau fyrirtæki sem hafa ánægða viðskiptavini náðu betri árangri en önnur.





hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica