Besta stöðin í þriðja sinn á fjórum árum
Ómar Gylfason, trúnaðarmaður félagsins á stöðinni sagði að þetta væri góð viðurkenning sem sýni að starfsmenn hljóti að vera að gera rétta hluti í vinnunni. "Allar stöðvar á landinu eru teknar út einu sinni í mánuði af óháðum aðila, en við vitum ekki hvenær hann er á ferðinni. Mánaðarlega fær því ein stöð viðurkenningu og í lok hvers árs er sú stöð sem oftast hefur verið valin best yfir árið þennan titil."
Auk þess að vera valin þjónustustöð Olís árið 2007, þá hlaut stöðin einnig þessa viðurkenningu fyrir árin 2004 og 2005.
Óskum starfsmönnum Olís á Akureyri til hamingju með viðurkenninguna.

