Olís fær einkaleyfi fyrir Quiznos
Að sögn Sigurðar Pálssonar, markaðsstjóra hjá Olís, hefur þessari nýjung verið tekið fagnandi af viðskiptavinum og Quiznos-stöðunum fjölgar nú jafnt og þétt á stærstu þjónustustöðvum Olís. „Þetta hefur gengið mjög vel og sérstaklega úti á landi þar sem ekki er mikið um erlenda matsölustaði í líkingu við Quiznos. Íbúar á þessum stöðum hafa komið við og fengið sér Quiznos-báta og líkað vel, enda mikið lagt upp úr ferskleika hráefnisins“, sagði Sigurður að lokum. Nú þegar má finna Quiznos á fimm þjónustustöðvum Olís víða um land: í Norðlingaholti, við Gullinbrú, í Álfheimum, Borgarnesi og á Reyðarfirði. Til stendur að opna fleiri Quiznos-staði á þjónustustöðvum Olís á næstu vikum og er áætlað að samtals níu Olís-stöðvar muni bjóða upp á gómsæta Quiznos nú fyrir sumarið. Verði viðtökur jafngóðar og verið hefur á þessum fyrstu Quiznos-stöðum verður þess örugglega ekki langt að bíða að enn fleiri staðir bætist í hópinn. Auk þess eru reknir þrír aðrir Quiznos-staðir með leyfi frá Olís. Fjölbreyttir Quiznos-bátar Boðið er upp á tólf báta með mismunandi áleggstegundum auk salats og meðlætis. Nýjasti Quiznos-báturinn er Prime Rib og hefur sá gert mikla lukku hjá viðskiptavinum en í honum er nautakjöt með ýmsu vel við eigandi eins og piparsósu, lauk og osti. Einnig er boðið upp á tvo báta með íslensku lambakjöti sem hafa verið mjög vinsælir hjá Quiznos auk báta með roast beef, kjúklingi, beikoni, salami o.fl. Á stefnuskránni er að bæta við ýmsum nýjungum sem Quiznos erlendis er að vinna með og verður spennandi að sjá hvort þær muni falla að smekk íslenskra sælkera. Það verður gert með tímabundnu tilboði og metið verður í framhaldinu hvort þessar nýjungar fái sess á matseðli Quiznos. Quiznos Sub var stofnað af Chef Jimmy í Denver, Colorado, árið 1981. Tíu árum síðar voru staðirnir orðnir 18 talsins en þá tók nýr aðili við rekstrinum sem ákvað að gera Quiznos að alþjóðlegri sérleyfiskeðju með þeim árangri að á árunum 2003–2006 stækkaði Quiznos hraðast af sambærilegum keðjum í heiminum. Quiznos-staðirnir eru nú um 4.500 talsins um allan heim.


