Fréttir

Opinn skógur

Hálsaskógur

Nýlega var Hálsaskógur við Búlandsnes á Djúpavogi formlega opnaður undir merkjum Opins skógar með hátíðlegri athöfn. Markmiðið með verkefninu Opinn skógur er að opna fjölmörg skógræktarsvæði í eigu og umsjón skógræktarfélaga og gera þau aðgengileg almenningi. Áhersla er lögð á að aðstaða og aðgengi sé góð og á að miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu. Í Hálsaskógi hefur verið grisjað, sett upp fræðsluskilti um skóginn, trjátegundir og valin örnefni á svæðinu og komið upp borðum og bekkjum. Aðgengi að skóginum er til fyrirmyndar, en Vegagerðin hefur séð um að útbúa bílastæði og laga veg að skóginum.

Átta svæði hafa verið opnuð með formlegum hætti innan verkefnisins. Svæðin eru: Daníelslundur í Borgarfirði (2002), Hrútey við Blönduósbæ (2003), Snæfoksstaðir í Grímsnesi, Tunguskógur við Ísafjarðarbæ, Eyjólfsstaðaskógur á Héraði, Sólbrekkur á Reykjanesi (2004), Hofsstaðaskógur á Snæfellsnesi (2005) og Tröð við Hellissand (2006). Fyrirhuguð er opnun á Akurgerði í Öxarfirði þann 5. júlí næst komandi.





hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica