Króna af hverjum eldsneytislítra til HSÍ
Olís styður íslenska handboltaliðið um krónu af hverjum lítra. Íslenska landsliðið í handknattleik hefur staðið sig frábærlega á Ólympíuleikunum í Peking og hrifið landsmenn alla með stórkostlegum leik þar sem samhugur og leikgleði er í fyrirrúmi. Ekki sér fyrir endann á þessu Ólympíuævintýri og aldrei að vita nema strákarnir fari hreinlega alla leið. Það er ljóst að kostnaður vegna þátttöku er umtalsverður, sama í hvaða sæti við lendum. Olís hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum til styrktar landsliðinu. Frá kl. 15.00 miðvikudaginn 20. ágúst og fram til lokunar laugardaginn 23. ágúst rennur króna af andvirði hvers eldsneytislítra sem selst á þjónustustöðvum Olís til HSÍ. Áfram Ísland!

