Fréttir

Fréttatilkynning

að þróun eldsneytisverðs verði könnuð hér á landi vill Olíuverzlun Íslands benda á þá staðreynd að meðal annars vegna aðgerðaleysis stjórnvalda þá eru rekstrarskilyrði fyrir fjármagnsfrekan rekstur eins og sölu og dreifingu á olíuvörum þau verstu hér á landi í allri Evrópu og þótt víðar væri leitað. Gengisfall krónunnar um ríflega 30% og vaxtastig sem nálgast 20% hefur margfaldað fjármagnskostnað félagsins. Þessi kostnaðarauki mælist í slíkum stærðum að enginn atvinnurekstur getur staðið undir slíku án þess að það fari út í verðlag.  Hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði hefur magnað þessi áhrif enn frekar með stækkun efnahagsreiknings, aukningu skulda og hækkun dreifingarkostnaðar.  Það liggur fyrir að ríkið tekur tæpar 75 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra á sama tíma og aukinn rekstrarkostnaður hefur étið upp hlutdeild félagsins í eldsneytisverði.  Það er verðugt verkefni fyrir stjórnmálamenn að ná böndum á verðbólgu og vaxtastigi í landinu, en það verður ekki gert með því að ráðast með ómaklegum hætti að einstaka atvinnugreinum.  Olíuverzlun Íslands hefur nú þegar veitt umboðsmanni neytenda allar þær upplýsingar um olíumarkaðinn sem hann hefur óskað eftir.  Samkvæmt lögum er verðlagning í landinu frjáls, en verðlagning á olíuvörum verður að endurspegla raunkostnað á hverjum tíma.  Algengt sjálfsafgreiðsluverð á bensíni hjá Olíuverzlun Íslands er nú 165,7 kr/ltr, en á sama tíma kostar bensínlítrinn í Danmörku 181 krónu, í Noregi kostar bensínlítrinn 207 krónur, í Bretlandi kostar bensínlítrinn 175 krónur og í Þýskalandi kostar bensínlítrinn 180 krónur.  Olíuverzlun Íslands mun hér eftir sem hingað til leggja sig fram um að veita viðskiptavinum afburða þjónustu og samkeppnishæft verð.



hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica