Íslenska sjávarútvegssýningin 2008
Íslenska sjávarútvegssýningin í Smáranum í Kópavogi var opnuð í morgun þegar sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, hleypti af 140 ára gamalli fallbyssu af Skaga. Um 550 aðilar frá yfir 30 löndum taka þátt í sýningunni og er hún orðin einn þekktasti viðburðurinn í heimi sjávarútvegsins. Frá upphafi hefur þjónusta við sjávarútveg verið stór þáttur í starfsemi Olís og fyrirtækið lagt sig í hvívetna fram um að sinna greininni vel. Olís tekur þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni sem haldin er í Smáranum dagana 2.-4. október. Gaman væri að sjá sem flesta í básnum okkar sem er nr. C40.


