Fréttir

Móttöku á íslenskum ullarflíkum lokið

Mikið safnaðist á bensínstöðvum Olís af íslenskum ullarfatnaði fyrir eldri borgara í Bretlandi, en söfnuninni lauk þriðjudagsins 20. janúar. Um er að ræða samstarf á milli Bylgjunnar, Landflutninga - Samskipa, Jóna Transport og Olís að safna íslenskum ullarfatnaði á landinu og senda til þurfandi eldri borgara á Bretlandi sem búa við erfiðar aðstæður vegna kulda. Bylgjan, Kolla og Heimir, munu taka á móti gámnum í Immingham og afhenda fatnaðinn samtökum eldri borgara sem sjá um dreifingu hans. Átakinu verður fylgt eftir á Bylgjunni meðan söfnun stendur yfir og þar til fatnaðurinn er kominn til áfangastaðar og vonandi kemur í veg fyrir að fólk deyi úr kulda. Gert er ráð fyrir að afhenda lopapeysurnar 26.janúar.



hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica