Fréttir

Drottningarmót ÍR og Olís 2009

Hið árlega Drottningamót ÍR og Olís verður haldið laugardaginn 18. apríl 2009. Drottningamótið er ætlað knattspyrnudrottningum sem náð hafa 25 ára aldri og eru ekki spilandi með meistaraflokkum félagsliðanna.  Þetta er í þriðja skiptið sem mótið er haldið og er stefnt á skemmtilegt og veglegt mót að vanda.

Tekið verður á móti liðunum í ÍR-heimilinu og leikmönnum boðið upp á rjúkandi te og rist klukkan 11:00, en að morgunhressingu lokinni verður mótssetning klukkan 12:30 og í beinu framhaldi hefjast leikar á gervigrasi ÍR.  Mótslok eru áætluð um klukkan 18:00 með verðlaunaafhendingu í hátíðarsal ÍR-heimilisins og þar verður boðið upp á léttan mat og skemmtun fram eftir kvöldi. 

Tekið er við skráningu liða fram til 5. apríl á póstfangið drottningar@gmail.com og þangað er einnig hægt að senda fyrirspurnir um mótið.   Þátttökugjald er 2000 kr. á leikmann og greiðist fyrir 14. apríl.

Upplýsingasíða mótsins á netinu er http://drottningamotid.blogcentral.is/

 



hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica