Olís styrkir íþróttasamband fatlaðra
Olis hefur skrifaði undir styrktarsamning við Íþróttasamband fatlaðra um beinan fjárstuðning vegna Norræns barna- og unglingamóts fatlaðra sem fram fer í Eskilstuna í Svíþjóð í júlíbyrjun n.k. Olís hefur um margra ára skeið stutt starfssemi sambandsins og var nú endurnýjaður formlegur samningur um fjárhagslegan stuðning vegna undirbúnings og þátttöku íslensku keppendanna á mótinu. Norræna barna og unglingamótið er haldið annað hvert ár, til skiptis á hverju Norðurlandanna. Megintilgangur mótsins er að skapa þessum hópi aðstæður til að hittast við æfingar og keppni en ekki síður að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. Þetta mót á sér langa sögu og margir hafa þar stigið sín fyrst skref í íþróttakeppni. Þar má nefna sundfólkið, Kristínu Rós Hákonardóttur, Eyþór Þrastarson, Sonju Sigurðardóttur og frjálsíþróttamanninn Jón Odd Halldórsson, allt einstaklingar sem verið hafa í fremstu röð fatlaðra íþróttamanna í heiminum. Íþróttasamband Fatlaðra hefur lagt metnað sin í að eignast íþróttamenn í fremstu röð sem séu landi og þjóð til sóma og vill Olís með samningi þessum renna styrkari stoðum undir starfssemi Íþróttasambands Fatlaðra.

