Áfylling á gaskúta hjá Olís
Nú þegar grill- og ferðavertiðin er hafin hjá mörgum eða um það bil að hefjast er ástæða til að minna fólk á að það getur komið með tóma gaskúta og fengið þeim skipt fyrir nýja á næstu Olís stöð. Við seljum allar helstu tegundir og stærðir af gaskútum og hina ýmsu fylgihluti þeim tengdum. Við viljum líka nota tækifærið og minna fólk á að fara mjög varlega með gas og kynna sér vel hvernig best er að meðhöndla það. Á vef Landsbjargar er að finna góðan lista með ábendingum um meðhöndlun á gasi. Sjá skjalið hér. Við óskum ykkur svo gleðilegs sumars með von um gott ferðasumar og góðar stundir við grillið.

