Fréttir
Heppinn lottóspilari keypti miðann á bensínstöð Olís við Norðlingabraut
Potturinn var fimmfaldur um síðastliðna helgi og voru tveir miðar með allar tölurnar réttar og vinningur upp á 17,8 milljónir á hvorum þeirra. Þeir voru seldir í Olís við Norðlingabraut í Reykjavík og Víkurskálanum í Vík í Mýrdal. Miðaeigendur eru báðir búnir að gefa sig fram. Sá sem keypti miðann sinn í Olís er ungur maður sem keypti sér íbúð fyrir stuttu síðan og er auk þess í námi og ekki þarf að efast um að þessi vinningur á eftir að koma sér vel hjá honum.

