Hjólað í vinnuna
Nú stendur yfir átakið Hjólað í vinnuna sem er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Þetta er í sjöunda sinn sem þessu átaki er hleypt af stokkunum og met hefur verið slegið í fjölda þátttakenda. Olís er þátttakandi í þessu átaksverkefni í ár sem og árin á undan og hefur fjöldi þátttakenda margfaldast á milli ára. Það er ljóst að þetta átak hefur góðan hljómgrunn hjá fyrirtækjum og nokkuð ljóst að það er komið til að vera. Á myndinni má sjá hluta þeirra sem taka þátt í verkefninu fyrir hönd Olís.

