Fréttir
Tveir heppnir Vildarklúbbsfélagar Icelandair
Í byrjun júní sendi Icelandair út fréttabréf til Vildarklúbbsfélaga sinna þar sem meðlimum gafst kostur á að sækja um staðgreiðslukort Olís. Þeir sem skráðu sig fyrir 15. júni áttu kost á því að vera dregnir út og hljóta 60.000 Vildarpunkta í vinning. Vinningshafarnir sem dregnir voru úr pottinum heita Sigurbjörn Ingi Sigurðsson, Efstasundi 29 og Þóra Elisabet Kjeld, Bjargarstíg 5. Olís óskar þessum vinningshöfum til hamingju með Vildarpunktana.

