Ævintýraeyjan á fullri ferð
Á laugardaginn verða Hemmi Gunn og Svansý með þátt sinn á blúshátíð á Ólafsfirði. Eins og endra nær verða dregnir út vikulegir vinningar í stimpilleik Ævintýraeyjunnar. Tvo síðustu laugardaga hafa verið dregnir út heppnir vinningshafar og eru nöfn þeirra birt á www.ævintýraeyjan.is. Á vefsíðu Ævintýraeyjunnar er að finna upplýsingar um leikinn og þar má einnig finna skemmtiefni af ýmsu tagi. Um leið og við þökkum frábærar viðtökur á stimpilleiknum viljum við minna alla vegfarendur á að fara varlega í umferðinni.

