Fréttir

Raggi Bjarna í Höllinni

Raggi75_frettHinn dáði söngvari Ragnar Bjarnason heldur glæsilega afmælistónleika í Laugardalshöll þann 26. september. Eins og svo margir vita hefur Raggi verið áberandi í auglýsingum Olís og það er því sönn ánægja fyrir félagið að vera stuðningsaðili þessa viðburðar. Við minnum á að miðasala er hafin í verslunum Skífunnar og á midi.is. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært um að mæta og heiðra þennan frábæra söngvara með nærveru sinni. Á tónleikunum koma fram auk Ragga: Björgvin Halldórsson, Buff, Diddú, Guðrún Gunnarsdóttir, Laddi, Megas, Mugison, Páll Óskar, Ragnheiður Gröndal, Stefán Hilmarsson og Sumargleðin með þau Hemma Gunn, Magnús Ólafsson, Ómar Ragnarsson, Þorgeir Ástvaldsson og Þuru.

Sérstakir gestir: Guðmundur Steingrímsson og Ólafur Gaukur úr KK-sextettinum.

Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson - Tónlistarstjóri: Þórir Baldurson - Sviðssetning og handrit: Björn G. Björnsson.

Smellið hér til að fara beint inná viðburðinn á midi.is.





hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica