Fréttir

Aðalvinningshafar Ævintýraeyjunnar

eyjan_septNú er stimpilleik Ævintýraeyjunnar lokið. Þátttakan hefur aldrei verið meiri og met var slegið í innsendingu stimpilkorta. Í hverri viku í sumar var dregið úr innsendum stimpilkortum í þætti Hemma Gunn og Svansý og fengu margir glæsilega vinninga. Laugardaginn 29. ágúst voru svo dregnir út aðalvinningar sumarsins. Þeir sem hlutu vinningana voru, Stefán Jökull Jakobsson sem hlaut 4 VIP miða á Anfield, heimavöll Liverpool ásamt flugferð fyrir fjóra, Stefán Einarsson hlaut Baotian vespu og Benedikt Kröyer ferð fyrir tvo til London með gistingu. Við óskum þessum vinningshöfum sem og öllum vinningshöfum sumarsins til hamingju með vinningana. Ævintýraeyjan fer nú í frí en kemur aftur að liðnum vetri með ný og spennandi ævintýri.

Á myndinni má sjá Stefán Einarsson taka á móti Baotian vespu úr hendi Bjarna Kjartanssonar starfsmanns Ásbjörns Ólafssonar ehf.  



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica