Metþátttaka á skákmóti stúlkna um helgina
Taflfélagið Hellir hélt í samstarfi við Olís skákmót stúlkna sem fram fór á laugardaginn síðastliðinn. Þetta er í fimmta sinn sem þetta mót er haldið en markmiðið með því er að auka áhuga stúlkna á íþróttinni en drengir hafa verið í miklum meirihluta í greininni. Keppt var í fjórum flokkum, prinsessuflokki a og b, drottingaflokki og öskubuskuflokki en þar keppa byrjendur í peðaskák. Lenka Ptácníková sigraði í drottningaflokki, Ásta Sóley Júlíusdóttir í prinsessuflokki a, Heiðrún Anna Hauksdóttir í prinsessuflokki b og Elín Edda Jóhannsdóttir í öskubuskuflokki.

