Gunnar G. Ásbjörnsson kveður Olís eftir 52 ára starf
Það er ekki algengt að menn vinni alla sína starfsævi hjá einum og sama vinnuveitandanum. Það varð hinsvegar raunin hjá Gunnari G. Ásbjörnssyni en þann 25. febrúar lét Gunnar af störfum hjá Olís eftir að hafa starfað hjá fyrirtækinu í 52 ár. Hann hóf störf hjá félaginu 15 ára gamall árið 1957 og hefur því starfað hjá Olís undir stjórn allra forstjóra félagsins að undanskyldum Héðni Valdimarssyni fyrsta forstjóra félagsins. Gunnar byggði fyrir tveimur áratugum ásamt Guðbjörgu konu sinni bústað í Kjósinni og sér fram á að eyða miklum tíma í framtíðinni í sveitasælunni í faðmi fjölskyldunnar enda ríkur af börnum, barna- og barnabörnum. Starfsmenn Olís þakka Gunnari fyrir gott og ánægjulegt samstarf og óska þeim hjónum og fjölskyldu þeirra velfarnaðar í framtíðinni.
Á myndinni má sjá Einar Benediktsson forstjóra Olís, Guðbjörgu Jónu Magnúsdóttir og Gunnar G. Ásbjörnsson.

