Fréttir

Vika verslunar og þjónustu

spilum_saman_logoOlís er þátttakandi í átaksverkefni samtaka verslunar og þjónustu en verkefnið stendur yfir frá 11. – 17. mars. Tilgangur “Viku verslunar og þjónustu” eins og herferðin kallast er tvíþættur, annarsvegar sá að vekja athygli á mikilvægi verslunar og þjónustu sem er atvinnugrein sem fjórði hver Íslendingur starfar við. Hinsvegar að hvetja Íslendinga á jákvæðan og ábyrgan hátt að “spila með” og taka þátt í að snúa hjólum atvinnulífsins með því að eiga viðskipti við verslunar- og þjónustufyrirtæki. Þema vikunnar er samspil einstaklinga og atvinnulífsins en til þess að fyrirtæki geti verndað og aukið störf þurfa þau á neyslu almennings að halda.  Hér til hliðar má sjá merki herferðarinnar “Spilum Saman” en það má sjá víða þessa dagana í verslunum um land allt.  



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica