Fréttir

Drottningamót ÍR og Olís 2010.

 

Drottningamótið er ætlað knattspyrnudrottningum sem náð hafa 25 ára aldri og eru ekki spilandi með meistaraflokkum félagsliðanna.  Þetta er í fjórða skiptið sem mótið er haldið og er stefnt á skemmtilegt og veglegt mót að vanda.

Tekið verður á móti liðunum í ÍR-heimilinu og leikmönnum boðið upp á rjúkandi te og rist klukkan 09:00, en að morgunhressingu lokinni verður mótssetning klukkan 10:30 og í beinu framhaldi hefjast leikar á gervigrasi ÍR.  Mótslok eru áætluð um klukkan 16:00 með verðlaunaafhendingu. Um kvöld verður síðan skemmtun  í hátíðarsal ÍR-heimilisins .

Tekið er við skráningu liða fram til 5. apríl á póstfangið drottningar@gmail.com og þangað er einnig hægt að senda fyrirspurnir um mótið.   Þátttökugjald er 2500 kr. á leikmann og greiðist fyrir 9. apríl.

Upplýsingasíða mótsins á netinu er http://drottningamotid.blogcentral.is/



hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica