Fréttir

Olís skiptir yfir í Smellugas

Nýji þrýsitjafnarinn-smellan
Mynd 1 af 2
1 2

Olíuverzlun Íslands hf. hefur hafið innflutning á gasi og gashylkjum frá BP GAS í Danmörku. Á sama tíma innleiðir Olís nýja tegund þrýstijafnara sem gerir skipti á gaskútum mun einfaldari en áður. Hægt er að nálgast nýjan þrýstijafnara á næstu Olís stöð án endurgjalds. Nýja kerfið verður kynnt undir nafninu Smellugas. Þrýstijafnarann þarf ekki lengur að skrúfa á gashylkið með öfugum skúfgangi heldur er honum einfaldlega smellt á. Þannig er mun þægilegra og fljótlegra að skipta um gashylki. Smellugaskerfið verður á 5, 6, 10, og 11 kg gashylkjum. Stærri einingar, sem t.d. eru notaðar á veitingahúsum, verða áfram með skrúfuðum þrýstijafnara.

Til að nota nýja Smellukerfið þarf að skipta um þrýstijafnara á þeim tækjum sem ganga fyrir gasi. Þetta er einföld aðgerð sem flestir geta gert sjálfir. Þeir sem ekki treysta sér til að skipta um sjálfir geta nýtt heimaþjónustu Olís þar sem starfsmenn frá fyrirtækinu koma heim og skipta um þrýstijafnara án endurgjalds. Hægt er að sækja um heimaþjónustu á www.smellugas.is eða í síma 515-1100 á milli kl. 8–17. Gashylkin og þrýstijafnarinn standast allar gæðaprófanir og uppfylla alla evrópska öryggisstaðla. 

Olís býður öllum þeim sem kaupa Smellugas ókeypis þrýstijafnara. Þrýstijafnarar fást á næstu Olís-stöð og í útibúum um land allt. Fyrst um sinn býðst innihaldið með 25% afslætti, einnig verður 20% afsláttur af tómum 5 og 10 kg plastkútum. 


hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica