Fréttir
Smellugaskynning í Smáralind
Olís hóf í gær kynningu á Smellugasinu í Smáralind. Fjölmargir kynntu sér þessa nýjung og prófuðu einnig að smella nýja þrýstijafnaranum á gashylki. Á myndinni má sjá starfsfólk okkar við kynningarbásinn sem staðsettur er á neðri hæð Smáralindar. Við verðum þar fram á sunnudag en á laugardaginn verður Hera með tónleika kl. 14-15, þar sem hún mun m.a. taka Eurovision lagið. Gert er ráð fyrir að um 20-30 þúsund manns leggi leið sína í Smáralind á laugardaginn.


