Fréttir

Samlokur Kokksins í verslunum Olís á Austurlandi

samloka_kokksinsÍ dag fást Samlokur Kokksins á þjónustustöðvum Olís á Austurlandi. Þetta er þriðja árið sem Kokkur framleiðir samlokur sem gerðar eru úr staðbundu(local) hráefni frá Ríki Vatnajökuls.  Kokkur leggur mikla áherslu á að nýta staðbundið hráefni í matargerð og má þar nefna samlokur eins og Reykt Bleykja, Reykt Önd, Makríll og auðvitað Humar samloka.

Hjónin Guðbjörg og Jón Sölvi opnuðu skyndibitastaðinn Kokkur í nóvember 2007 en þar eru allar vörur afgreiddar í gegnum bílalúgu. Í dag reka þau skyndibitastaðinn ásamt því að framleiða Samlokur og Humarsoð Kokksins.

Jón Sölvi segir: „Hjá mér eru allir viðskiptavinir jafn mikilvægir og ég legg mikinn metnað í gæði matarins hvort sem það eru samlokur, hamborgari eða nautasteik“  það eiga allir að fara saddir og ánægðir frá Jóni Kokk.

Gríptu með þér ferska samloku gerða úr staðbundu hráefni frá Kokki á þjónustustöð Olís á Hellu, Höfn í Hornafirði, Fellabæ, Neskaupstað og Reyðarfirði.



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica