Fréttir

Veganesti frá Kexsmiðjunni í verslunum Olís

veganestiÍslendingum er tamt að nota orðatiltækið gott veganesti og er ýmis mismunandi skilningur lagður í orðin. Gott veganesti er þó ávallt eitthvað sem er gott að hafa með í för, hvert sem förinni er svo sem heitið.


Olís hefur einmitt hafið sölu á þesskonar veganesti frá Kexsmiðjunni en um er að ræða nýjung á íslenskum markaði þar sem í fyrsta sinn fæst sérpakkað góðgæti eins og formkökur, vínarbrauð, möffins og kanilsnúðar sem henta vel, t.d. í ferðalög sumarsins.

Veganestið er tilvalin biti fyrir þá sem vilja sneiða framhjá sælgæti en um leið styðja við góða íslenska framleiðslu. Veganestinu hefur þegar verið tekið afbragðs vel og verður auðvelt að þekkja veganestið úr nestisflórunni í verslunum Olís þar sem iðagrænn Veganestismiðinn sést sérstaklega vel.



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica