Fréttir

Olís - vinur við veginn

olis_augl_06Undanfarin misseri hefur stórsöngvarinn og bílaáhugamaðurinn Raggi Bjarna verið andlit Olís og átt veglegan þátt í þeirri vinalegu ímynd sem fyrirtækið hefur skapað sér. Í nýjum sjónvarpsauglýsingum sem birtast munu á næstunni heldur Olís áfram á vinalegum nótum. Þar fylgjumst við með vinsamlegum samskiptum tveggja Olís-starfsmanna, Garðars og Dagnýjar, en Dagný er ung og nýbyrjuð og nýtur leiðsagnar hins fullorðna reynslubolta. Samskiptin verða nokkuð kostuleg á köflum. PIPAR/TBWA sá um gerð auglýsinganna, Óskar Jónasson leikstýrði, Jón Ólafsson samdi tónlist og aðalhlutverkin voru í höndum Sigurgeirs Hilmars Friðþjófssonar og Kristínar Þóru Haraldsdóttur.

Hér má sjá tvær auglýsinganna á YouTube,

http://www.youtube.com/watch?v=fskrD1Goc8U

http://www.youtube.com/watch?v=VrfmxrDr-i8




hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica