Fréttir

Litla Kaffistofan 50 ára

Litla Kaffistofan
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Litla Kaffistofan fagnar nú þeim merka áfanga að hafa þjónað Íslendingum og erlendum gestum við Suðurlandsveginn í 50 ár. Stefán Þormar Guðmundsson sem rekur Litlu Kaffistofuna hefur ásamt fjölskyldu sinni viðhaldið þeim góða anda sem einkennt hefur þessa uppáhalds vegasjoppu landans öll þessi ár. Þessi titill er byggður á staðreyndum en ekki óskhyggju því Litla Kaffistofan hefur oftast allra vegasjoppa í landinu hlotið þann eftirsótta tiltil að vera uppáhalds áningastaður Íslendinga við þjóðveg 1. Það hefur hún gert árin 2001, 2003, 2007 og 2009. Í tilefni afmælis er boðið er uppá kaffi, kleinur og pönnukökur á meðan birgðir endast í dag 4. júní og einnig er -10 kr. afsláttur af eldsneyti.    



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica