Fréttir

Ævintýraeyjan farin af stað

Ævintýraeyjan er farin af stað í sjötta skiptið á jafn mörgum árum. Leikurinn er með sama sniði og áður en hann gengur útá að viðskiptavinir Olís safna stimplum í svonefnt stimpilkort og fá glaðning fyrir hvern stimpil. Í hverri viku er svo dregið úr hópi þeirra sem hafa sent inn fullstimplað kort þá vikuna. Í lok leiks eða nánar tiltekið þann 4. september verða svo dregnir út aðalvinningar sumarsins.

Stimpilkortinu hefur verið dreift í öll hús á landinu en þau má einnig nálgast á þjónustustöðvum Olís. Nánar má lesa um leikinn á heimasíðu Ævintýraeyjunnar en á henni má einnig finna Ævintýraeyjubókina í .pdf útgáfu og margt fleira skemmtilegt.

Laugardaginn 12. júní draga Hemmi Gunn og Svansý út fyrstu vinningshafa sumarsins í vikulegum þætti sínum á laugardögum í sumar. Í þættinum sem sendur er út þessa vikuna frá Selfossi verða dregnir út 100.000 Vildarpunktar Icelandair og 10kg Smellugas.



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica