Vinningshafar Ævintýraeyjunnar í síðustu viku
Dregnir voru út fyrstu vikulegu vinningar sumarsins í þætti Hemma Gunn og Svansý síðastliðinn laugardag en í þetta skiptið voru þau stödd á sumarhátíðinni Kótilettan á Selfossi. Þeir heppnu voru Hólmfríður Óladóttir en hún hlaut 100.000 Vildarpunkta Icelandair og Eyjólfur Mattíasson sem vann sér inn 10kg Smellugas. Við óskum þessum heppnu þátttakendum til hamingju með vinningana. Á vef Ævintýraeyjunnar má nálgast upplýsingar um leikinn, vinningana og vinningshafa en nöfn þeirra verða birt á síðunni strax að loknum útdrætti á laugardögum. Næsta laugardag senda Hemmi og Svansý út frá Akureyri og í það skiptið mun þau draga út 75.000 vildarpunkta Icelandair og 20.000 kr. eldsneytisúttekt.

