Fréttir

Verðhækkun á bensíni og dísel

Eins og hefur ítrekað komið fram í fjölmiðlum undanfarna daga og vikur, þá hefur geisað verðstríð á bensín- og díselmarkaði hér á landi. Verð á bensíni og dísel er nú langt undir því verði sem þarf til að standa undir eðlilegum rekstrarkostnaði.

Olís hækkar í dag verð á bensíni og dísel um 20 krónur á lítra, en eins og sést á meðfylgjandi grafi þá er verð félagsins vel undir verði í flestum af okkar nágrannaríkjum þrátt fyrir þessa hækkun (Upplýsingar um verð í Evrópu voru teknar nú í morgun af vefnum http://www.benzinpriser.nu/).

Það er stefna félagsins að haga verðlagningu í samræmi við þróun heimsmarkaðsverðs, en á sama tíma að bjóða viðskiptavinum ávallt upp á samkeppnishæft verð og góða þjónustu og við þá stefnu mun félagið standa.

Hér má sjá graf með bensínverði í sjálfsafgreiðslu 21/06



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica