Verðlækkun á bensíni og dísel
Olís hækkaði verð á bensíni og dísel um 20 kr/ltr nú í morgun. Eins og kom fram í tilkynningu samhliða breytingunni þá var verð komið langt undir það verð sem þarf til að standa undir eðlilegri verðmyndum miðað við innkaupsverð og gengi. Nýtt verð tók mið af heimsmarkaðsverði og gengi nú í morgun og þrátt fyrir hækkun var verð með því lægsta sem gerist í okkar nágrannaríkjum.
Það er stefna félagsins að bjóða viðskiptavinum upp á samkeppnishæft verð og góða þjónustu og því lækkar félagið verð aftur um 20 kr/ltr. Félagið vill árétta að lækkað verð tekur eingöngu mið af samkeppnisástæðum, en er allt of lágt sé miðað við heimsmarkaðsverð og gengi.

