Fréttir

Ævintýraeyjan í fullum gangi

Það hefur ekki staðið á þátttöku í Ævintýraeyjunni þetta sumarið. Stimpilvinningarnir dælast út til ánægðra viðskiptavina Olís og til viðbótar hafa verið dregnir út 3x2 vikulegir vinningshafar. Hemmi og Svansý sjá um þann hluta leiksins og nú síðast drógu þau út tvo vinningshafa en þau voru stödd um helgina í Garðinum með Bylgjunni á ferðalagi. Vinningshafarnir voru, Steinunn Hilmarsdóttir sem hlaut 10kg Smellugas og Tómas Waagfjörð sem hlaut 50.000 Vildarpunkta Icelandair. Næstu helgi verða þau stödd á Höfn í Hornarfirði og draga út 10kg Smellugas og 75.000 Vildarpunkta Icelandair. Nú er bara að drífa sig að ná fullstimpluðu Ævinitýraeyjukorti, skila því til starfsmanna þjónustustöðva Olís, fá nýtt kort og byrja að stimpla aftur því leikurinn er rétt að byrja og mikið af vinningum í pottinum.  



hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica