Olísmótið á Selfossi verður haldið helgina 6.-8. ágúst n.k.
Mótið er fyrir knattspyrnustjörnur 5. flokks karla.
Knattspyrnudeild Selfoss mun halda knattspyrnumótið Meistaradeild Olís í sjötta skipti í sumar. Mótið verður haldið helgina 6.-8. ágúst á Selfossi og er ætlað fyrir stráka í 5. flokki. Góð aðsókn er á mótið og komust færri félög að en vildu.
Fyrirkomumulag mótsins verður með þeim hætti að á föstudag verður spilað hraðmót til þess að getuskipta liðunum. Laugardag og sunnudag verður spiluð riðlakeppni. En allar nánari upplýsingar má finna á http://www.olismot.is/
Hér til hliðar má sjá nokkrar myndir sem teknar voru á mótinu.


