Olís tekur þátt í sumarherferð Kolviðar
Hægt verður að nálgast límmiða á bensínstöðvum Olís til að setja á bílrúður. Þar koma þátttakendur með kolefniskvittun sína fyrir flug og/eða bíl en einungis þeir sem kolefnisjafna bíla fá afhentan límmiða „kolefnisjafnaður bíll“.
Hápunkti nær verkefnið um verslunarmannahelgi, sem er mesta ferðahelgi landsmanna. Tengt verslunarmannahelgardagskrá Rásar 2 (föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag) munu dagskrárgerðarmenn ferðast um og leita að bifreiðum sem eru með merki Kolviðar í bakglugga bifreiða sinna. Þeir sem dregnir verða út, og eru að hlusta á Rás 2, fá veglega vinninga frá samstarfsaðilum. Jafnframt verða nöfn þeirra, sem hafa kolefnisjafnað flugferðir sínar hjá Iceland Express og Icelandair og afhenda kvittunina hjá Olís, sett í pott og þau dregin út í beinni útsendingu.
Þeir sem hafa kolefnisjafnað flug eða bíl og afhenda kvittun sína hjá Olís eiga möguleika á vinningum.

