Styrktarbeiðnir

Styrktarbeiðnir

olis_sparkOlís hefur í gegnum árin verið ötult við að styrkja góð málefni bæði stór og smá. Við teljum að þátttaka í íþróttum hafi gríðarlegt forvarnargildi og stuðli að heilbrigðari æsku. Því hefur Olís lagt mikið af mörkum til þess málaflokks með því að styrkja hin ýmsu íþróttafélög víða um land. Eitt af stærri styrktarverkefnum sem Olís hefur stutt er sparkvallaverkefni KSÍ. Sparkvellirnir eru litlir knattpsyrnuvellir, 18 metrar á breidd og 33 metrar á lengd. Í kringum þá er girðing sem gerir það að verkum að boltinn er alltaf í leik. Leikið er á fyrsta flokks gervigrasi sem á flestum völlum er upphitað og einnig eru þeir flestir flóðlýstir. Árið 2008 voru vellirnir orðnir 122 talsins og fjölgar með hverju árinu sem líður.

Hér getur þú lagt inn beiðni um styrk eða auglýsingu. Auglýsingastofan Pipar/TBWA og Olís meta hverja beiðni fyrir sig. Svaraðu spurningunum og mundu að skilja eftir nafn, símanúmer og netfang svo að hægt sé að hafa samband til baka. Í flestum tilvikum verður beiðni svarað viku eftir að hún er lögð inn. Öllum umsóknum verður svarað.


Smelltu hér til að sækja um styrk



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica