Stefna og markmið

Stefna og markmið

Verslunar- og þjónustufyrirtæki í fremstu röð

Olís er verslunar- og þjónustufyrirtæki á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði, sem býður góðar, samkeppnishæfar vörur og rekur sölu- og þjónustukerfi í fremstu röð. Olís selur orkugjafa og aðrar rekstrarvörur, svo sem smurolíur, hreinsivörur og efnavörur svo og almennar neysluvörur til fyrirtækja og einstaklinga. Olís aflar Image3-006872-06aðfanga með eigin innflutningi og kaupum af innlendum birgjum eftir hagkvæmni hverju sinni. Olís fjárfestir í atvinnustarfsemi á sviðum sem tengjast eða styðja meginstarfsemi félagsins. Félagið fylgist jafnframt með arðbærum sóknarfærum á nýjum sviðum. 




Meginmarkmið

Meginmarkmið Olís er að vera viðurkennt sem leiðandi fyrirtæki á Íslandi á sínu sviði hvað varðar arðsemi, þjónustu við viðskiptavini, gæði vöru, umhverfisvernd og góða ímynd, þar sem sérstök áhersla er lögð á stuðning við umhverfis- og mannúðarmál.

 
Leiðir að meginmarkmiði

  • Góð þekking starfsmanna
  • Framúrskarandi þjónusta
  • Lágmörkun kostnaðar
  • Sveigjanlegt upplýsingakerfi og nýjasta upplýsingatækni á hverjum tíma
  • Mikil aðlögunarhæfni. Einföld vinnuferli
  • Ábyrg, sjálfstæð og öguð vinnubrögð byggð á markmiðasetningu og árangursmati
  • Virkjun á hugmyndaauðgi og notkun óhefðbundinna leiða við lausn vandamála


hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica