UMHVERFISMÁL
Olís hefur um árabil lagt ríka áherslu á stuðning við samfélagsmál og frá árinu 1992 hefur félagið unnið skipulega að umhverfis- og uppgræðslumálum, enda er það stefna fyrirtækisins að standa vörð um náttúru Íslands. Baráttan hefur ekki eingöngu falist í styrkjum til hinna ýmsu málefna á sviðið náttúruverndar heldur einnig í daglegri starfsemi og þjónustu fyrirtækisins. Með það markmið að leiðarljósi var gefin út umhverfisstefna fyrir starfsemi félagsins á 70 ára afmæli þess árið 1997. Með umhverfisstefnu sinni vildi Olís stuðla að því að hver kynslóð skili landinu og auðlindum þess í betra horfi til þeirrar næstu.

Meðferð Olís á söluvörum, förgun úrgangsefna, endurnýtingu umbúða, vöruþróun, byggingu mannvirkja og vali á rekstrarvörum tekur ætið mið af umhverfisvernd. Félagið hefur hlotið umhverfisverðlaun Reykjavíkur og viðurkenningar fyrir fagrar lóðir, enda bera starfsstöðvar Olís stefnu fyrirtækisins og markmiðum glöggt vitni. Olís hefur byggt upp nýjar þjónustustöðvar sem eru hannaðar með umhverfisstaðla nýrrar aldar í huga. Má þar nefna umbúðalausa sölu á rúðuvökva, frostlegi og smurolíu. Olís leggur einnig kapp á góðan aðbúnað og umhverfi starfsmanna til að tryggja öryggi, heilbrigði og vellíðan þeirra.
