NOTkunarskilmálar vegna Flugmílukorts Olís
1. gr.
Korthafar
Kortið er gefið út á einstaklinga. Fyrirtæki, samtök og/eða aðrir aðilar geta ekki fengið kortið.
Kortið er auðkennt með kortanúmeri, nafni og kennitölu korthafa. Kortið er afhent korthafa án endurgjalds.
Allir einstaklingar, 18 ára og eldri, geta sótt um kortið.
Korthafa er einum heimilt að nota kortið.
Með notkun kortsins hefur korthafi samþykkt aðild að kortinu og jafnframt notkunarskilmála þessa.
Með skriflegri tilkynningu geta korthafar sagt upp kortinu, hætt þátttöku og þannig fengið sig afmáða úr skrám félagsins.
2. gr.
Almennir skilmálar
Olís áskilur sér rétt til að neita korthafa aðgangi að kortakerfinu og að loka reikningi korthafa ef skilmálar þessir eru brotnir.
Ef kortið glatast eða ef því er stolið skal korthafi tilkynna það til Olís þegar í stað. Innlausn punkta með stolnu eða glötuðu korti sem ekki hefur verið tilkynnt um til Olís er alfarið á ábyrgð korthafa. Hægt er að tilkynna um glatað kort og sækja um nýtt kort í gegnum þjónustusímann 515 1166.
Olís áskilur sér rétt til að leggja kortið niður eða breyta skilmálum þessum án fyrirvara og án þess að tilkynna korthöfum það sérstaklega.
Kortið er ekki greiðslukort.
Gildistími korts er að jafnaði 4 ár. Kort endurnýjast sjálfkrafa.
Kortið er eign Olís. Misnotkun þess varðar við lög.
3. gr.
Punktasöfnun
Ferðapunktar færast ekki á Vildarreikning korthafa nema ef greitt er með Olískorti.
Við kaup á vöru eða þjónustu skal ávallt framvísa kortinu samhliða greiðslu með Olískorti til að fá eignfærða ferðapunkta vegna viðskiptanna.
Við notkun kortsins fá korthafar eignfærðan á sinn reikning tiltekinn fjölda ferðapunkta hjá Vildarklúbbi Flugleiða samkvæmt útgefinni punktatöflu Olís.
Punktar eru að jafnaði eignfærðir á viðkomandi Vildarreikning mánaðarlega.
Olís áskilur sér rétt til að leiðrétta punktastöðu ef upp hefur komið villa í skráningu eða misnotkun á kortinu.
4. gr.
Notkun og meðferð punkta
Korthafar gerast sjálfkrafa félagar í Vildarklúbbi Flugleiða. Um notkun og meðferð áunninna ferðapunkta gilda reglur Vildarklúbbs Flugleiða.
Korthafar geta fengið yfirlit um punktainneign á vefsvæði Flugleiða, www.icelandair.is. Þar kemur fram heildarhreyfing á punktainneign sem og upplýsingar um punktasöfnun og úttektarmöguleika. Einnig er hægt a hringja í þjónustusíma Vildarklúbbsins, sem er 505 0777. aðrar upplýsingar um kortið er að finna hjá Olís og geta korthafar hringt í þjónustusímann 515 1166 og fengið upplýsingar varðandi notkun kortsins.
Ef reglur varðandi innlausn ferðapunkta eru brotnar, áskilur Olís sér rétt til þess að krefjast greiðslu fjárhæðar sem samsvarar upphæð punktainnlausnar.
Olís ábyrgist ekki að hægt sé að innleysa ferðapunkta ef kerfið er óstarfhæft, t.d. vegna óviðráðanlegra orsaka.
Innlausn ferðapunkta á reikning korthafa er algjörlega á ábyrgð hans.
