
ICELANDAIR SAGA CLUB
Nú getur þú safnað punktum í Icelandair Saga Club á öllum þjónustustöðvum Olís, hvort sem þú greiðir með korti eða peningum. Þannig að í hvert sinn sem þú átt í viðskiptum við Olís getur þú safnað Vildarpunktum.
Til að safna vildarpunktum hjá Olís þarftu að vera skráður í Icelandair Saga Club
Samkvæmt skilmálum Saga Club geta fyrirtæki ekki safnað Vildarpunktum.
Til að safna Vildarpunktum Icelandair þarf að greiða úttekt með Visa Icelandair, American express vildarkorti eða Einstaklingskorti Olís.
Nú geta allir safnað Vildarpunktum hjá Olís óháð greiðslumiðli
Mundu eftir Sagakortinu þínu
Einstaklingar sem ekki eru handhafar Vildarkorts Visa, American Express eða með Olís kort geta líka safnað vildarpunktum. Það eina sem þú þarft að gera er að framvísa Sagakortinu þínu þegar þú greiðir. Ef kortið þitt er glatað getur þú endurnýjað Sagakortið þitt með því að hringja í síma 50 50 100. Þú færð síðan kortið sent heim og getur strax byrjað að safna Vildarpunktum.
Vildarpunktar Icelandair eru 1,5% af veltu og koma til viðbótar við annan afslátt. Saga Club félagar fá 15 Vildarpunkta fyrir hverjar 1.000 krónur á öllum Olís- og ÓB-stöðvum.
Smelltu hér til að sjá hvernig þú getur notað Vildarpunkta Icelandair Saga Club.

AUKAKRÓNUR
Söfnun Aukakróna
Það er einfalt að safna Aukakrónum. Það eina sem þú þarft að gera er að nota kreditkort með Aukakrónusöfnun. Olís endurgreiðir 1,75% af veltu í formi Aukakróna. Þ.e.a.s. fyrir hverjar 1.000 kr. sem þú greiðir hjá Olís með kreditkortinu þínu færðu 17,5 Aukakrónur endurgreiddar.
Millifærsla Aukakróna
Þegar þú vilt nýta uppsafnaðar Aukakrónur hleður þú þeim einfaldlega inn á Aukakrónukortið og notar það síðan eins og venjulegt debitkort. Hleðslan á sér stað í gegnum Einkabanka, þar sem þú sérð einnig yfirlit yfir Aukakrónustöðuna þína. Einnig er hægt að hringja í ráðgjafa- og þjónustuver til að biðja um millifærslu á Aukakrónum. Hægt er að millifæra Aukakrónur frá einum aðila sem safnar Aukakrónum til annars og gefa viðkomandi þannig innistæðuna í Aukakrónum.
Notkun Aukakróna
Þú ákveður hvenær og hjá hvaða samstarfsaðila þú ráðstafar Aukakrónunum þínum. Aukakrónukortið, sem er sérstakt úttektarkort, er rafrænt greiðslukort sem eingöngu er hægt að nota hjá samstarfsaðilum.

Smellugas
Fullkomið fyrir grillið, heimilið, bátinn...

Fjáröflunarvörur
Pokapakki (5rl) Nestispokar, svartir ruslapokar, gráir höldupokar, skrjáfpokar 50x60cm, hnútapokar 200stk , flottur pakki