Heilbirgðisvörur bjóða upp á tæki og búnað í fyrsta gæðaflokki sem henta fyrir flestar heilbrigðisstéttir sem og aðra aðila sem tengjast heilbrigðisrekstri. Má þar nefna t.d. súrefnismettunar- og púlsmæla, vogir, mjaltavélar og hitakassa svo fátt eitt sé nefnt.
Hanskar
Við bjóðum gæða skoðunarhanska úr nitrile.
- Mjög sterkir og teygjanlegir, leggjast vel að höndunum
- Latexfríir hanskar,sem hafa reynst frábærlega þeim sem eru með ofnæmi og viðkvæmar hendur
- Hanskarnir eru þrisvar sinnum sterkari en náttúrulegt latex og vinyl
Súrefnismettunar, hemaglobin- og púlsmælar
Masimo framleiðir hágæða mæla sem athuga súrefnismettun, púls eða hemaglobin í líkamanum. Mælarnir frá Masimo eru stafrænir með skýrum og góðum skjá, þannig að hægt er að lesa niðurstöður á skýran hátt.

Fæðingar- og æðadopplerar
Ultrasound Technologies hefur framleitt til fjölda ára fæðingar- og æðadopplera og m.a. fengið viðurkenningu sem útflytjandi ársins árið 2003 í Wales þar sem höfuðstöðvar Ultrasound eru.

Skurðverkfæri
Mikið úrval af fjölnota skurðverkfærum fyrir spítala, tannlækna og dýralækna. Verkfærin eru frá virtum þýskum framleiðanda Nopa Instruments
Lyfjakælar
Kirsch hefur framleitt hágæða lyfjakæla sem henta bæði stórum sem smáum heilbrigðisstofnunum.

Sogvörur
Í boði er sogpokar, sogílát og sogdælur frá Ardo og Serres. Smelltu hér til þess að kynna þér betur vöruúrval okkar frá Ardo.

Brjóstholssog
Búnaður til brjóstholssog er í boði frá Atrium auk búnaðar þá getum við boðið alla aukahluti fyrir brjóstholssoginn. Atrium framleiðir einnig ýmsar vörur á sviði hjarta og æðaskurðlækninga.
Ýmsar plastvörur fyrir spítala
Erum með nýrnabakka, nálabox og þvag og saursýnaglös frá Aptaca og Uson Plast

Hjálpartæki og böð
Vörur frá þýska fyrirtækinu GK-Medizinmechanik sem framleiðir gæða hjúkrúnarböð og lyftur. Smelltu hér til þess að kynna þér betur vöruúrval okkar frá GK-Medizinmechanik.

Aðgerðarpakkar
Í boði eru aðgerðapakkar fyrir flestar tegundir aðgerða. Hægt er að kaupa tilbuin sett með öllu sem þarf í viðkomandi aðgerð og er með þessu hægt að spara mikinn tíma og kostnað við undirbúning aðgerða. Smelltu hér til þess að kynna þér úrval okkar af aðgerðapökkum frá Rocialle.
Ómskoðunar-gel og vaxstangir
Danska fyrirtækið Rohde býður upp á fyrsta flokks vörur, sem reynst hafa mjög vel hér á landi undanfarin ár. Vörur á borð við gel sem notað er við ómskoðun, og 1kg vaxstangir til notkunar í vaxpotta.
Vogir
Heilbrigðissvið Hátækni flytur inn vogir frá fyrirtækinu ADE í Þýskalandi. ADE hefur sérhæft sig í framleiðslu á nákvæmum mælitækjum sem henta bæði fyrir sjúkrahús sem og rannsóknarstofur.

Bílavörur
Eðlilegt viðhald eykur endingu, dregur úr útgjöldum við rekstur bílsins og eykur öryggi hans í umferðinni. Til þess eru margvísleg handhæg tæki og efni sem auðvelda verkið.

Rafgeymar
Úrval af rafgeymum frá Exide










