Úrval af hreinlætispappírRekstrarvörudeild sérhæfir sig í sölu á alls kyns hreinsi-, sótthreinsi- og viðhaldsefnum auk annarra rekstrarvara eins og hreinlætispappírs, hreinlætisáhalda, einnota vara o.s.frv. Enn fremur má nefna sölu á efnavörum, byggingarvörum, verkfærum, rafsuðuvélum, rafgeymum, gas- og bílavörum í miklu úrvali.
Hreinsi- og sótthreinsiefni
Olís hefur lengi lagt áherslu á hreinsi- og sótthreinsiefni fyrir fisk- og kjötvinnslur auk annarrar matvælavinnslu sem smám saman hefur þróast í breitt úrval hreinlætis- og viðhaldsvara til flestra nota. Starfsmenn Olís-rekstrarvara bjóða heildarlausnir og veita alhliða ráðgjöf varðandi hreinlæti í matvælaiðnaði, gerð þrifaáætlana, eftirlit með þrifum, val á tækjum, gæðaeftirlit o.s.frv. Efni til nota í matvælavinnslu eru samþykkt af Umhverfisstofnun. Þá hefur Olís um árabil boðið gott úrval af bílavörum, verkfærum, vasaljósum og rafhlöðum ásamt ýmsum þjónustuvörum.
Smellið á vörulistann til að skoða vöruúrval Olís í rekstrarvörum
Hafðu samband við sérfræðinga Olís og fáðu nánari kynningu.
Upplýsingar beint í síma 515 1100 eða pontun (hjá) olis.is.

Rafgeymar
Úrval af rafgeymum frá Exide

Þjónustuborð
Starfsmenn á Þjónustuborði taka á móti pöntunum frá viðskiptavinum, hvaðan sem er af landinu, frá kl. 08:00 - 17:00 alla virka daga.
