Beitir NK123 - Mynd, Halldóra Auður JónsdóttirÚtgerðarvörudeild býður viðskiptavinum heildarlausnir í veiðarfærum frá virtum framleiðendum á samkeppnishæfu verði, persónulega þjónustu og sérfræðiráðgjöf. Lögð er áhersla á að eiga alltaf á lager helstu vörur sem í boði eru, ásamt því að starfsmenn deildarinnar aðstoði viðskiptavini við að útvega sérpantanir.
Vöruúrvalið
Vöruúrvalið nær yfir flest það sem snýr að veiðarfærum og rekstrarvörum. Einnig er lögð áhersla á þjónustu við hafnir, bæjarfélög, verktaka og einstaklinga.
Helstu vöruflokkar deildarinnar eru:
- Keðjur
- Tog- og snurpuvírar
- Vinnslu- og kranavírar
- Toghlerar
- Ýmsar gerðir af netum,tógum og línum.
- Blakkir
- Hnífar
- Fjölbreytt úrval af sjófatnaði og vinnufatnaði
- Línubyssur
- Bjarghringir
- Björgunarvörur
- Flotgallar
- Svif og handblys
- Man overboard baujur
- Öryggishjálmar frá Jofa
- Þybbur
- Slöngur
- Keðjur
- Lásar fyrir hafnarmannvirkin
- Trolllásar
- Patentlásar
- Öryggislásar
- Allt til Skelræktar
- Flot og baujur
- Söfnunar, burðar og bólfestutóg
Starfsmenn útgerðarvörudeildar eru einnig til taks við hönnun og gerð hvers kyns hífingarbúnaðar og á víraverkstæði er veitt öll almenn þjónusta viðkomandi vírum, keðjum og á stroffum ásamt splæsingum og þrykkingum hverskonar. Jafnframt annast starfsmenn deildarinnar eftirlit og ráðgjöf varðandi ástand víra og búnaðar í t.d. krönum, spilum og verksmiðjum.
Heildarlausn í einu símanúmeri
Örugg og hraðvirk þjónusta
- Olís býður hnitmiðað vöruval á hagstæðu verði, þekktar og viðurkenndar rekstrarvörur eins og Champion, Relavit, Powles-Hunt og United.
- Þjónusta Olís felst ekki síst í fræðslu og þjálfun starfsmanna viðskiptafyrirtækja Olís í notkun vöru og búnaðar sem fyrirtækið selur.
- Þjónustustöðvar Olís um land allt tryggja þér alltaf örugga viðhaldsþjónustu. Olís hefur samið við viðurkennd þjónustufyrirtæki um viðhald og viðgerðir á tækjabúnaði.
Hvar sem þú ert á landinu eða á hafi úti, er alltaf ein auðveld leið til að fá úrlausn mála sem snerta útgerðina.
Þú hringir í 515 1100 og starfsfólk Olís finnur lausn sem hentar þér.

Heimilispakki
Sem inniheldur örtrefjaklút, uppþvottalög, uppþvottabursta, pottasvampa 10stk í pakka., gúmmíhanska, handsótthreinsir 100ml,alhliðahr. m/dælu 500ml. og glerúði m/dælu 500ml.

Þjónustuborð
Starfsmenn á Þjónustuborði taka á móti pöntunum frá viðskiptavinum, hvaðan sem er af landinu, frá kl. 08:00 - 17:00 alla virka daga.