Vöruhús OlísVörumóttaka er á miðlagerum og vörum dreift þaðan til sölustaða og útibúa. Félagið úthýsir vöruhúsastarfsemi að mestum hluta og er aðal vöruhús félagsins hjá Samskipum að Kjalarvogi í Reykjavík, en auk þeirra eru minni vöruhús í Reykjavík og úti á landsbyggðinni.
Vörupantanir innan höfuðborgarsvæðisins sem berast fyrir hádegi eru afgreiddar eftir hádegi sama dag. Pantanir sem berast eftir hádegi eru afgreiddar fyrir hádegi daginn eftir. Pantanir sem berast utan af landi eru afgreiddar og sóttar af vöruflutningabílum daginn eftir. Sé óskað eftir að fá vöruna afgreidda utan tilgreinds tíma er hægt að óska eftir að fá hraðsendingu gegn greiðslu svokallaðs flýtigjalds. Í neyðartilvikum er beiðnum sinnt utan hefðbundins afgreiðslutíma gegn útkallsgjaldi.
Sölukerfi Olís býður:
- Hagkvæmar heildarlausnir
- Einfalt pantanakerfi
- Stuttan afgreiðslutíma
- Hagstætt verð
- Útibú og sölumenn eða þjónustu um land allt
- Hagnýta ráðgjöf og þjálfun
Upplýsingar um þjónustu:
- Sími: 515 1100
- Grænt númer: 800 5100
- Símbréf: 515 1011
- Vöruhús Olís, Héðinsgötu 2, 104 Reykjavík
- Átöppun, Hólmaslóð 8-10, 101 Reykjavík
- Vöruafgreiðsla Samskip, Kjalarvogi, 104 Reykjavík - Athugið, Hurð 35.
- Tölvupóstur: pontun (hjá) olis.is

Fjáröflunarvörur
Pokapakki (5rl) Nestispokar, svartir ruslapokar, gráir höldupokar, skrjáfpokar 50x60cm, hnútapokar 200stk , flottur pakki

Bílavörur
Eðlilegt viðhald eykur endingu, dregur úr útgjöldum við rekstur bílsins og eykur öryggi hans í umferðinni. Til þess eru margvísleg handhæg tæki og efni sem auðvelda verkið.
Athafnasvæði Samskipa