
Olís er eitt af 30 stærstu fyrirtækjum landsins og eru starfsmenn fyrirtækisins og dótturfélaga um 420.
Olíuverzlun Íslands hf. var stofnað 3. október 1927. Félagið hefur fylgt þeirri þróun sem átt hefur sér stað í íslensku atvinnulífi allt frá stofnun þess. Olíuverzlun Íslands er í dag þekktari undir nafninu Olís en starfsemi félagsins er skipt upp í þrjú meginsvið: Smásölu- og eldsneytissvið, heildsölu- og rekstrarvörusvið og fjármálasvið auk stoðsviða sem eru starfsmannasvið og markaðssvið. Félagið rekur fjölda þjónustustöðva undir vörumerki Olís ásamt sjálfsafgreiðslustöðvum undir vörumerki ÓB - ódýrt bensín.
Hlutverk Olís
- er að vera verslunar- og þjónustufyrirtæki í fremstu röð á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða viðskiptavinum góðar og samkeppnishæfar vörur á samkeppnishæfu verði ásamt sveigjanlegu sölu- og þjónustukerfi um allt land.
Olís sérhæfir sig í sölu og þjónustu með eldsneyti auk ýmissa nauðsynjavara fyrir bíleigendur, vörum til útivistar og ferðalaga ásamt fjölþættri þjónustu við sjávarútvegs-, verktaka- og flutningafyrirtæki um land allt.
Gildi Olís
Gildi Olís eru framsækni, fagmennska og traust