Logo

Kílómetrastaðan komin í appið!

12. mar. 2026

Eknir kílómetrar skráðir í Olís – ÓB appið

Nú geta viðskiptavinir Olís og ÓB skráð kílómetrastöðu ökutækja sinna í Olís – ÓB appinu sér að kostnaðarlausu og sér appið þá um að senda upplýsingarnar áfram til Samgöngustofu. Hægt er að skrá stöðuna á 30 daga fresti en að lágmarki þarf að skrá stöðuna á kílómetramæli ökutækja einu sinni á ári. Notandi appsins getur skráð stöðu kílómetramæla á öllum ökutækjum sem hann er skráður eigandi að en hvorki er hægt að skrá bíla sem eru á skammtíma- eða langtímaleigu né fyrirtækjabíla sem viðkomandi hefur umráð yfir. Skráningarnúmer ökutækis er einfaldlega skráð inn í Olís – ÓB appið sem sækir upplýsingar um tegund, undirtegund og þ.h. og birtir þær í appinu. Allar skráningar á kílómetrastöðu vistast í appinu og þannig má fylgjast með aksturssögu hvers ökutækis fyrir sig.

Algengar spurningar

 

Hvað þarf ég að gera til að skrá kílómetrastöðu í appinu?

 Þú setur inn skráningarnúmer ökutækis og við sækjum upplýsingar um tegund, undirtegund og þ.h. Ökutækið er þá skráð í appinu og þú getur byrjað að skrá stöðuna á kílómetramælinum.

 

Kostar þetta mig eitthvað?

 Þessi þjónusta kostar ekkert fyrir viðskiptavini Olís og ÓB.

 

Hvenær og hvernig fær þá Samgöngustofa kílómetrastöðuna senda til sín?    

 Um leið og þú hefur skráð stöðuna á kílómetramælinum í appið sendum við upplýsingarnar áfram til Samgöngustofu.

 

Hversu oft þarf ég að skrá stöðuna?

 Þú getur skráð stöðuna með 30 daga millibili en að lágmarki þarf að skrá kílómetrastöðu ökutækis einu sinni á ári. Samgöngustofa reiknar kílómetragjald samkvæmt innsendum gögnum einu sinni í mánuði.

 

Get ég skráð hvaða ökutæki sem er í appið?

Nei, þú getur aðeins skráð þau ökutæki sem þú er skráður eigandi að. Hvorki er hægt að skrá ökutæki á skammtíma- eða langtímaleigu né ökutæki fyrirtækja sem þú kannt að hafa umráð yfir.

Er hægt að skrá mörg ökutæki í appið?

Þú getur skráð öll ökutæki sem þú ert skráður eigandi að í Olís – ÓB appið; auk bifreiða er hægt að skrá bifhjól, fjórhjól og öll önnur ökutæki sem eru með skráningarskylt númer

Hvaða upplýsingar eru geymdar í appinu?

Olís – ÓB appið geymir upplýsingar um skráð ökutæki og allar skráningar á eknum kílómetrum þannig að hægt er að fylgjast með aksturssögu hvers ökutækis fyrir sig.