Exide rafgeymar
- Exide var stofnað 1888 af Thomas A. Edison, en hans hugsjón var á frummálinu: ”Produce an EXcellent oxIDE”.
- Exide vörumerkið byrjaði 1903 og er því yfir 100 ára gamalt.
- Exide rafgeymar eru viðurkennd hörkutól og sérstaklega hannaðir til að þola mikið álag.
- Exide selur allar stærðir og gerðir af lyftararafgeymum og hleðslutækjum.
- Exide lyftararafgeymar eru seldir með tveggja ára ábyrgð. (Sjá ábyrgðarskilmála)
- Exide rafgeymar eru framleiddir fyrir nánast allar stærðir og gerðir farartækja.
Með tilkomu sífellt flóknari og fjölbreyttari farartækja sem búin eru sérhæfðum rafbúnaði,
hefur þörfin fyrir öfluga og trausta rafgeyma aukist.


Exide Premium Carbon Boost
Nýi Premium Carbon Boost rafgeymirinn hleður sig helmingi hraðar vegna kolefnishúðunar á neikvæðu plötunni, sem er einkaleyfisvarin tækni. Tækni þessi var uppgötvuð við þróun AGM og EFB rafgeymanna, tæknin leyfir aukna hleðslu og styttingu á hleðslutíma. Premium Carbon Boost rafgeymirinn er sérhannaður til að þola miklar breytingar á hitastigi, tækjanotkun sem er frek á raforku og síendurteknar ræsingar og stuttar vegalengdir.
Exide Carbon Boost tækni
Ávinningur
- 30% aukaafl við ræsingu
- Endurhleður sig allt að helmingi hraðar
- Upplagt fyrir bíla með mikinn aukabúnað og aflmiklar vélar sem hafa mikla þörf fyrir aukarafmagn
- Upplagt fyrir erfið veðurskilyrði og síendurtekna ræsingu
- Uppfyllir skilyrði OE
- Yfirgripsmikil lína sem nær yfir um 90% af bíltegundum


Sölumaður
Kristján Gísli Stefánsson
Sölumaður sérhæfðar vöru og þjónustu
Hafa samband