
Fjölnishlaup Olís
14. maí. 2026
Fjölnishlaup Olís verður haldið í 38. sinn á Uppstigningardag og er elsti starfandi viðburður Fjölnis. Hlaupið hefur verið fastur liður í starfi félagsins í áratugi og skipar mikilvægan sess í samfélaginu í Grafarvogi. Þorgeir Örn Tryggvason, markaðsstjóri Fjölnis, hafði þetta um samstarfið: „Það eru frábærar fréttir að Olís haldi áfram að styðja við Fjölnishlaupið, sem er viðburður sem er mjög mikilvægur í starfsemi Fjölnis. Við erum gífurlega þakklát fyrir áframhaldandi stuðning og farsælt samstarf við Olís.“
Þá hafði Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðukona markaðsmála hjá Olís þetta að segja um nýja samninginn: „Við hjá Olís erum stoltir styrktaraðilar Olís hlaupsins sem er nú haldið í 38. skipti. Olís leggur áherslu á að taka virkan þátt í og styðja við samfélagið í Grafarvogi við erum þar með öfluga þjónustustöð ásamt Glans þvottastöð sem Grafarvogsbúar hafa tekið mjög vel.

